|
Heimsóknir
Í dag: 6 Alls: 62879
|
01.06.2008 20:58:32 / audur
Ég var að renna yfir fyrirsagnirnar á visi.is þegar ég rak augun í eina spennandi: "Hanna Birna næsti borgarstjóri". Ég var ekki lengi að klikka á tengilinn til að lesa alla fréttina og það sem ég varð (og er enn) hneiksluð. Þar var sem sagt verið að segja frá könnun sem Capacent gerði fyrir Stöð 2. Ok, gott og vel að Stöð 2 vilji reyna að komast að því hver er líklegur til að verða næsti borgarstjóri, en aðferðafræðin við að komast að því er gjörsamlega út úr kortinu.
Spurt var: Hvern finnst þér að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að velja sem næsta borgarstjóra Reykjavíkur? Í úrtakinu voru 1100 manns og svarhlutfall var 53,3%. Stærð úrtaksins er fín, en svarhlutfallið ekki sérlega gott. Þýðið í könnuninni voru landsmenn allir ... bíddu nú við. Þegar ég sá það rak ég upp stór augu. Það var sem sagt ekki verið að athuga hug Sjálfstæðismanna í Reykjavík, eins og kannski eðlilegt væri að gera, heldur var í fyrsta lagi verið að kanna hug kjósenda allra flokka og í öðru lagi voru allir landsmenn spurðir.
Samkvæmt þessari vafasömu könnun segja 57% þátttakenda að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að velja Hönnu Birnu sem næsta borgarstjóra.
Hvað segja þessar niðurstöður okkur? Svarið er ekki flókið; þær segja okkur akkúrat ekki neitt.
Ef einhver kjósandi Vinstri grænna sem býr í Hveragerði hefur verið spurður þessara spurningar, hvernig ætli hann svari? Er hann að hugsa út frá hagsmunum síns flokks eða Sjálfstæðisflokksins. Er hann að hugsa út frá hagsmunum Reykvíkinga eða Hvergerðinga? Það er ekki gott að segja og í raun engin leið að vita það, nema spyrja hann sérstaklega að því. Eitt er hins vegar víst að það skiptir akkúrat engu máli hvað þessum ágæta Hvergerðingi finnst, hans skoðun, hverju svo sem hún kann að byggja á, skiptir nákvæmlega engu máli um það hver verður næsti borgarstjóri í Reykjavík.
Annað sem gerir það að verkum að enginn heilvita maður ætti að taka nokkurt mark á þessari könnun er að 8% aðspurðra segja að þeim finnist að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að velja Dag B. sem næsta borgarstjóra. Já einmitt, það er líklegt ... og sérlega gagnlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn, ekki satt?????
Mbk, Auður
»
26.05.2008 21:02:04 / audur
Hún er átakanleg og um leið hetjuleg baráttusaga Ellu Dísar, Rögnu og Jasmínar Hildar. Líklega hafa allir landsmenn heyrt af baráttu þeirra við hinn ógurlega sjúkdóm sem hrjáir Ellu Dís. Saga þeirra hlýtur að snerta alla, sér í lagi þá sem eiga lítil börn. Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda ef eitt af mínum börnum myndi þurfa að ganga í gegnum það sama og Ella Dís. Mikið ógurlega er maður lánsamur að eiga heilbrigð börn, það er ekki sjálfgefið og maður þarf að minna sig á það daglega. Það er ljóst að Ragna er baráttumanneskja og ég dáist að henni fyrir það hugrekki og þann styrk sem hún hefur í baráttunni við sjúkdóm dóttur sinnar. Hún ætlar greinilega ekki að gefast upp og finnur allar mögulegar leiðir til að gera líf þeirra bjartara. Samt sem áður virðist hún einnig líta afar raunsæum augum á þá stöðu sem dóttir hennar er í. Í júlí ætlar Ragna að fara með Ellu Dís til Kína í þeirri von að eitthvað sé hægt að gera fyrir litlu prinsessuna. Ragna er einstæð móðir með tvær litlar stelpur. Sú barátta sem hún stendur í er rándýr og í því velmegunarþjóðfélagi sem við lifum í má það ekki gerast að það séu peningar sem standa í veginum fyrir því að gera líf Ellu Dísar bjartara. Ég vil því biðja þig að leggja nokkur þúsund krónur inn á reikning Ellu Dísar. Það þarf ekki að vera mikið, enda safnast þegar saman kemur. Nokkur þúsund krónur til eða frá munu líklega ekki skipta sköpum fyrir þig, en þær geta skipt sköpum fyrir Rögnu, Ellu Dís og Jasmín Hildi í þeirri óskaplegu baráttu sem þær standa í. Reikningur: 0525-15-020106 Kennitala: 020106-3870
Hægt er að lesa um þær mæðgur á blogg-síðu sem Ragna heldur úti á slóðinni http://blogg.visir.is/elladis/
Ekki lesa þetta, finna til með þeim mæðgum og gera svo ekkert meira í málinu. Þú getur ekki gert margt til að hjálpa þessari litlu stúlku annað en að veita móður hennar fjárhagsstuðning svo hún geti nýtt þann eina möguleika sem eftir er til að gera líf Ellu Dísar ögn bjartara. Það litla sem þú þó getur gert máttu ekki sleppa að gera.
Mbk, Auður
»
22.05.2008 13:59:41 / audur
Sandkassaleikur borgarstjóra heldur áfram. Nú hefur hann birt upplýsingar um ferðakostnað borgarfulltrúa og varaborgarfulltrúa síðustu 3 ár. Hann er voða montinn yfir því að vera neðstur á þeim lista þar sem borgin hefur ekki greitt neinn ferðakostnað fyrir hann.
Hvað þýða þessir peningar? Þrátt fyrir að Ólafur hafi óneytanlega reynt að gera útgjöld til ferðalaga borgarfulltrúa tortryggileg og látið í ljós skýna að þarna væri um sporslur og auka hlunnindi að ræða, tel ég svo alls ekki vera. Að mínu mati getur það sannarlega verið dæmi um samviskusemi og afar virðingarvert ef borgarfulltrúar eru tilbúnir til að leggja á sig ferðalög til að bæta hag borgarbúa með einum eða öðrum hætti. Það er alls ekki þannig að hér sé um einhvers konar frí eða skemmtanir borgarfulltrúa að ræða, þetta er vinna og ekkert annað. Það ber fremur að þakka þessum ágætu borgarfulltrúum fyrir að nenna yfir höfuð að standa í þessum ferðalögum. Hvað ætlast Ólafur til? Ætlast hann til að borgarfulltrúar greiði ferðir vegna starfs síns úr eigin vasa? Eða vill hann kannski ekki að þeir ferðist neitt? Hver er tilgangur Ólafs með því að biðja um þessar upplýsingar og birta þær? Það hefur aldrei komið fram og það sem verra er, fjölmiðlar hafa aldrei spurt þeirrar spurningar, a.m.k. hef ég ekki séð það.
Hinn ágæti borgarstjóri hefur greinilega ekki ferðast mikið fyrir borgarbúa. Það er ljóst á þessum lista því ekki geri ég ráð fyrir því að hann hafi greitt fyrir slík ferðalög úr eigin vasa. Er það gott að hann hafi ekki farið í nein ferðalög eða er það slæmt? Er ekki eðlilegt að spyrja um tilgang ferðanna í stað þess að birta einhverja heildarupphæð um kostnað sökum þeirra.
Þessi listi sem Ólafur hefur nú birt nær þrjú ár aftur í tímann. Á þeim tíma hefur Ólafur ýmist verið í fullu starfi sem heimilislæknir (ásamt því að starfa sem borgarfulltrúi) eða verið fjarverandi sökum veikinda. Það skal því engan undra að hann hafi ekki komið því að í dagskrá sinni að sinna ferðalögum borgarbúum til hagsbóta.
Mbk, Auður
»
20.05.2008 09:50:50 / audur
Kveikt er á myndavélunum. Við erum stödd í stílhreinu herbergi þar sem er langborð og tveir stólar. Á öðrum stólnum situr karlmaður, ákveðinn á svip en um leið föðurlegur. Á hinum stólnum situr ung kona, glaðleg og sjálfsörugg.
Sena 1
KK: Hanna Birna, velkomin í þáttinn KVK: Takk fyrir það [Karlinn og konan takast í hendur] KK: Þið eruð búin að klúðra flokknum í Reykjavík. KVK: Það er auðvitað alrangt. KK: Það er tónninn í samfélaginu KVK: Já, við glímum við ákveðna erfiðleika ...
Svona hafa fyrstu línur af handritinu litið út sem Hanna Birna lærði svo glæsilega fyrir þáttinn Mannamál sem sýndur var á sunnudaginn.
Stjórnmálafólk og leikarar eiga meira sameiginlegt en marga grunar í fyrstu. Báðir hóparnir verða að vera færir í spuna til að eiga góða framtíð fyrir sér á sínu sviði, báðir hóparnir verða að geta farið eftir handriti sem einhver annar skrifar, báðir hóparnir verða að geta farið í hin ótrúlegustu hlutverk á hinum ótrúlegustu tímum og báðir hóparnir verða að geta leikið bæði í orði og gjörðum þvert gegn sinni sannfæringu.
Við viljum leikara sem geta gert allt þetta, en viljum við stjórnmálafólk sem uppfyllir þessi atriði?
Ég horfði á Mannamál á VefTV í gærkvöldi og satt best að segja vissi ég varla hvort ég ætti að hlæja, hneikslast eða reiðast yfir framgöngu Hönnu Birnu. - Samkvæmt henni leikur allt í lyndi innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna, smá deilur eru hollar og góðar og ef fólk þolir það ekki á það ekki að vera í stjórnmálum. Flokkast sirkusinn síðustu mánuði undir smá deilur? - Ólafur F. stendur sig vel sem borgarstjóri og hann má alveg gaspra eins og hann vill um hluti sem eru þvert gegn vilja Sjálfstæðisfólksins. - Ef Villi tekur ákvörðun um að setjast í stól borgarstjóra mun hún ásamt hinum sexmenningunum fylkja sér á bak við hann, en takið eftir því að hún undirstrikaði það rækilega að HÚN væri næsti kanditat, að hún væri í öðru sæti.
Borgin er að mati Hönnu Birnu alveg hreint æðisleg, hún átti varla til orð yfir það hvað allt væri frábært og dásamlegt í borginni okkar. Núna þarf bara svona smá fínpússun og natni við að gera hlutina enn betur. Bíddu ... hvar býr hún? Stór hluti af hjarta borgarinnar er í niðurníðslu, borgin er alla jafna skítug og sóðaleg, á hverju hausti skapast vandamál sökum manneklu á leikskólum, skipulagsmál í borginni hafa verið eins og lélegur brandari í mörg ár og fólk veit ekki einu sinni hvort á flennistóru svæði í miðju borgarinnar eigi að vera flugvöllur áfram eða ekki ... Þarf ég að halda áfram?
Er einhver sem tekur þetta fólk alvarlega lengur?
Mbk, Auður
»
19.05.2008 15:19:36 / audur
Margir hafa líklega séð fréttaflutning síðustu daga um veggspjöld sem tengd hafa verið við útlendingahatur. Veggspjöldin hafa verið hengd upp víðsvegar um höfuðborgarsvæðið og sýna þrjár hvítar kindur ýta einni svartri kind út af sínu svæði. Veggspjöldin eru merkt svissneska þjóðarflokknum sem er rasistaflokkur lengst til hægri í Sviss.
Nú kemur í ljós að hér er ekki um brjálaða útlendingahatara að ræða heldur er dreifing þessara veggspjalda hluti af svokölluðum listgjörningi. Það er svissneskur listamaður að nafni Christoph Büchel sem stendur fyrir athæfinu.
Ég hef oft og tíðum orðið vör við það að mín skilgreining á því hvað er list samræmist alls ekki alltaf skilgreiningum þeirra sem flokkast undir listafólk eða sérstaka vitringa í þeim efnum. Mér er gjörsamlega fyrirmunað að skilja hvað er listrænt við að hengja upp þessi veggspjöld ... er ég svona treg eða kannski laus við allt listrænt innsæi?
Mbk, Auður
»
15.05.2008 15:22:33 / audur
Rasismi er ört vaxandi vandamál á Íslandi. Ég hugsa að hinn "almenni borgari" geri sér ekki grein fyrir því hversu stórt og alvarlegt vandamál þetta er orðið. Þrátt fyrir sífellt meiri menntun þjóðarinnar virðist vanþekking og hrein og bein heimska grassera meðal fjölmargra hér á landi. Fyrir þá sem telja að hér sé ekki vandamál á ferðinni vil ég benda á tvær ógeðfelldar vefsíður sem rasistar hér á landi halda úti. Annars vegar er það vefsíðan http://www.skapari.com/ og hins vegar vefsíðan http://www.iceland.bloodandhonour.net/. Ég hvet þá sem efast um alvarleika málsins til að kíkja á þessar síður, en vara jafnframt við þeirri ógeðfelldu fáfræði sem þar birtist. Hvað er til ráða? Hvar er þjóðfélagið að bregðast? Ég er almennt ekki hlynnt því að vísa öllum vandamálum til skólakerfisins og setja ábyrgð á uppeldi á axlir kerfisins. Hins vegar er að mínu mati nauðsynlegt að yfirvöld bregðist við þeirri ógnvænlegu staðreynd að hér á landi eru starfræktir hópar sem aðhyllast rasisma í sinni ógeðfelldustu mynd. Það verður að gera eitthvað áður en orð þessara hópa breytast í aðgerðir. Mbk, Auður
»
14.05.2008 14:07:43 / audur
Magnús Þór Hafsteinsson kemur sér enn á ný í fjölmiðla vegna skoðana sinna á fólki sem passar ekki fullkomlega inn í hans módel um hinn sanna Íslending. Í kosningabaráttu síðustu ára hefur Frjálslyndi flokkurinn, m.a. með Magnús meðal fremstu hirðfífla, verið leiðandi í röðum íslenskra stjórnmálaflokka í vafasamri afstöðu til fólks af erlendu bergi brotnu. Sumir myndu segja málflutninginn einkennast af kynþáttafordómum og nokkrir hugaðir einstaklingar í stjórnmálum hafa þorað að segja það fullum fetum að málflutningur m.a. Magnúsar Þórs og Jóns Magnússonar einkennist af bullandi fordómum.
Nú glymur hátt í hinni tómu tunnu varðandi væntanlega komu flóttafólks frá Palestínu til Akraness. Magnús telur sveitarfélagið ekki í stakk búið til að hjálpa þessu fólki. Hann telur sveitarfélagið eiga nóg með sína. Er hægt að leggja að jöfnu þörf fólks á Akranesi um aðstoð og svo þörf fólks frá hinu stríðshrjáða landi Palestínu? Hvernig koma Skagamenn út úr þeim samanburði?
Það er sorglegt og hreinlega svívirðilegt að fólk hér í þessu lúxuslandi, einu ríkasta landi veraldar, skuli telja eftir sér að aðstoða 50 einstaklinga sem alla tíð hafa búið við hörmungar. Við erum ekki einvörðungu að tala um hversu björt framtíð þessa fólks verður heldur erum við hreinlega að tala um hvort það eigi yfir höfuð einhverja framtíð eða ekki.
Allir Íslendingar ættu að vera stoltir af því að geta orðið þessu vesalings fólki að liði. Auði fylgir ábyrgð og Íslendingar þurfa að vakna og átta sig á þeirri staðreynd að það er sannarlega kominn tími til að við öxlum ábyrgð sem eitt ríkasta land veraldar.
Mbk, Auður
»
10.05.2008 14:54:12 / audur
Það er áhugaverð frétt á visi í dag. Sagt er frá Duggar hjónunum í Arkansas í Bandaríknunum sem eiga nú von á sínu átjánda barni. Jáhá! Svo eru sumir sem hafa sagt að við Pálmi höfum verið að hrúga niður börnum á síðustu árum.
Hér er fréttin: Michelle Duggar fær líklega blómvönd eða tvo á mæðradaginn á morgun. Michelle, sem er fjörtíu og eins árs, er nú ófrísk að átjánda barni sínu og eiginmannsins, Jims Bob Duggar.
Börnin sautján eru á aldrinum níu mánaða til tuttugu ára, og heita öll nöfnum sem byrja á J. Hjónin búa ásamt börnunum í 650 fermetra húsi í Tontitown í Arkansasfylki, og kenna þeim heima. Enda kannski einfaldast, þar sem þau þurfa rútu til að ferja hópinn.
Hjónin segjast ætla að halda áfram að eignast börn svo lengi sem guð vill.
»
07.05.2008 21:09:31 / audur
Það er ekki meiningin að þessi vettvangur sem ég nota af og til fyrir vangaveltur og pólitískan útblástur, eigi einvörðungu að snúast um Ólaf F. Magnússon. Hins vegar gerir maðurinn manni hreinlega erfitt fyrir í þeim efnum þar sem hver vitleysan á fætur annarri virðist hringja niður úr ermum hans.
Hin pólitíska ráðning Jakobs Frímanns Magnússonar er nú nýjasta útspil borgarstjóra. Fyrir nokkrum mánuðum var auglýst staða verkefnisstjóra hjá Reykjavíkurborg þar sem á annan tug hæfra einstaklinga sótti um. Þær umsóknir fóru í gegnum faglegt ráðningarferli og þegar 100-daga-meirihlutinn fór frá völdum voru þrír einstaklingar eftir í úrtakinu.
Þegar Ólafur fékk þá snilldarhugmynd að finna fleiri djobb fyrir vin sinn Jakob Frímann hjá borginni, virðist hann ekki einu sinni hafa haft rænu á því að láta líta út sem hann hefði skoðað umsóknirnar þrjár sem eftir voru í úrtakinu um verkefnisstjóra. Þær sitja rykugar ofan í skúffu. Starf framkvæmdastjóra miðborgarinnar var greinilega bara ætlað einum manni.
Það þýðir ekki að ræða um hversu gríðarlega hæfur Jakob Frímann er. Það er ekki hans persóna eða hans hæfni sem er til umræðu í þessu máli. Málið snýst um hvort faglega sé staðið að málum varðandi ráðningar í veigamikil verkefni hjá borginni eða hvort unnið sé í fornaldarstílnum þar sem vel fægjað flokksskírteini var ávísun á góðan launatékka hjá hinu opinbera.
Og fyrst ég minnist á launatékka þá er alveg í lagi að lyfta augabrúnum yfir þeim launum sem Ólafur lætur borgarbúa greiða vini sínum. Fyrir starf sitt sem framkvæmdastjóri miðborgarinnar fær Jakob um 700 þúsund á mánuði. Við það bætast svo laun sem hann fær fyrir nefndarsetu. Ég legg það ekki í vana minn að agnúast út af því þó fólk fái sæmilegar tekjur. Mér finnst mun skemmtilegra að samgleðjast fólki sem hefur það náðugt og hefur tekist að semja vel um kaup sín og kjör. Hins vegar er ekki annað hægt en að gapa yfir þessum óskunda. Eftir því sem ég kemst næst eru þessi laun ekki í nokkru samræmi við laun annarra verkefnisstjóra hjá borginni, a.m.k. ekki þeirra sem eru nýráðnir og þar að auki aðeins ráðnir til eins árs. Ég hef nokkuð áreiðanlegar heimildir fyrir því að laun slíkra einstaklinga séu almennt rúmlega 400 þúsund og fari kannski nálægt 500 þúsund. Hugsanlega er hægt að finna einhverjar undantekningar, en ég tel afar ólíklegt að auðvelt verði að finna svona svakalega ýkt dæmi.
Þessi siðlausa einkavinavæðing Ólafs F. kemur mér raunar ekki á óvart. Hún er vel í takt við aðrar gloríur sem hann hefur gert í sinni tíð sem borgarstjóri. Hann má nefnilega eiga það blessaður að gloríu-verk hans eru fjölbreytt og hann passar sig vel á því að láta áhorfendur ekki bíða lengi á milli viðburða.
Er einhver það hugmyndaríkur að vera tilbúinn til að spá fyrir um næsta klúður borgarstjóra?
Mbk, Auður
»
06.05.2008 15:19:35 / audur
Það er ógurlega pínlegt að horfa á meirihlutann í borginni þessa dagana. Sjálfstæðismenn ná greinilega ekki að loka borgarstjórann nægilega vel inni, stundum sleppur greyið út og virðist þá í sífellu koma félögum sínum í meirihlutanum í bobba. Þeim hefur þó líklega tekist að skella í lás núna í smá tíma, því Óla er ekki hleypt út í dagsljósið til að "útskýra" ummæli sín á síðustu helgi um Vatnsmýrina. Þess í stað eru hinar sígandi stjörnur Sjáfstæðismanna, Gísli Marteinn og Hanna Birna, látin svara fyrir ummælin.
Þetta eru ekki sannfærandi útskýringar. "ja, sko, hann var ekkert að meina það sem hann sagði" ... "ummælin voru klaufaleg" ... "ummælin koma ekki á óvart" ...
Nú bíður maður bara spenntur eftir því hvað gerist næst þegar Óli sleppur út í dagsljósið.
»
30.04.2008 20:25:06 / audur
Það var sannarlega uppörvandi að sjá viðtalið við hina óeigingjörnu hetju, Eddu Mjöll, í Kastljósinu í kvöld. Edda Mjöll fermdist fyrir stuttu og afþakkaði gjafir frá gestum sínum en bað þá sem vildu gleðja hana um að leggja pening inn á reikning Barnaspítalans.
Það er aðdáunarvert að svona ungri stúlku skuli í fyrsta lagi detta þetta í hug og svo í öðru lagi að hún skuli vera tilbúin til að "fórna" fermingargjöfum fyrir gott málefni. Ef þetta lýsir ekki aðdáunarverðum persónueinkennum, þá veit ég ekki hvað gerir það.
Í viðtalinu var Edda Mjöll mjög einlæg og hreinskilin. Þessi unga stúlka á án efa eftir að láta mikið gott af sér leiða í framtíðinni, á því leikur enginn vafi. Það sem meira er, ég tel að þessi unga fermingarstúlka geti kennt ansi mörgum Íslendingum ýmislegt varðandi óeigingirni og það að kunna að meta það sem maður á, í stað þess að vera sífellt í neyslukapphlaupi eftir meiru og meiru.
Mbk, Auður
»
24.04.2008 21:08:18 / audur
Undanfarið höfum við sé kristallast um hvers konar fólk er að ræða sem stendur fyrir og hefur sem hæst í þeim óeirðum sem nú blossa upp reglulega á höfuðborgarsvæðinu. Seggurinn sem réðast á lögregluna við Kirkjusand í dag minnti helst á óstýrlátan krakkagemling, sem reynir að sýna sig og sanna fyrir félögunum í grunnskóla. Ætli þessi maður eigi börn? Svör og ummæli hins svokallaða talsmanns bílstjóra, Sturlu, eru farin að vera ansi takmörkuð. Sífellt röflandi um ferðir ráðamanna erlendis og vísar þá iðulega í ferðalög Ingibjargar Sólrúnar. Ætli sé ekki gott að einhver bendi honum á hvert hlutverk utanríkisráðherra sé? Björn Bjarnason birti á vefsíðu sinni í gær nokkur afar ómálefnaleg og svívirðileg bréf sem honum hefur borist sökum málsins. Ætli það sé tilviljun að þeir sem senda honum þessi bréf eru nánast óskrifandi? Arnór Jónsson sendir skrifar t.d.: „ Góðan dagin björn gerðu þjóðini greiða og skjótu þig svo við hin getum lifað lifinu þu ert ein stæðst hálfiti Islands“Ég vissi ekki að það væri mögulegt fyrir fullorðið fólk (geri ráð fyrir að krakkar skrifi ekki svona) að skrifa 10 af 21 orði rangt. Ég velti því mikið fyrir mér hvort þetta lið eigi börn og um leið hvernig umræðurnar á heimilunum séu um ráðamenn og lögreglu. Er hægt að gera ráð fyrir því að börn og unglingar sýni yfirvöldum og lögreglu vott af virðingu þegar uppalendurnir eru gjörsamlega óalandi? Ætli þeir séu stoltir af sjálfum sér? Hvernig taka þeir á því ef þeir fá símtal eina nóttina um að dóttirin/sonurinn sé í haldi lögreglu sökum árásar á lögregluna? Getur verið að hér sé um að ræða uppreisn hinnar vitsmunalegu-lágstéttar? Mbk, Auður
»
23.04.2008 20:31:29 / audur
Atburðir dagsins hafa dregið mig að blogginu á nýjan leik, sem hefur verið í miklum og góðum dvala undanfarið.
Þegar óeirðir bílstjóranna hófust fyrir fjórum vikum lét ég ýmis ófögur orð falla um þær aðgerðir. Ég var frá upphafi, líklega eins og systurpartur þjóðarinnar, gríðarlega mótfallin þeim og fannst þær í alla staði fáránlegar, óhugsaðar og ábyrgðarlausar. Ég hef aðeins lent einu sinni í því að festast í óreirðunum og sat þá föst hálftíma of lengi á Kringlumýrarbrautinni, með Matthías bláan af öskri sökum hungurs og þreytu í aftursætinu. Mér var ekki skemmt, svo ekki sé fastar að orði kveðið.
Aðgerðarleysi lögreglu framan af þótti mér ámælisvert og upp á síðkastið hreinlega forkastanlegt. Þegar ég sá fréttirnar í hádeginu í dag tók ég hins vegar gleði mína, loksins, loksins, loksins greip lögreglan til viðeigandi aðgerða, aðgerða sem sýna þessu fólki að svona lögbrot í nafni mótmæla lýðast ekki í lýðræðislegum réttarríkjum.
Ég er stolt af því hvernig lögreglan tók á málunum í dag. Ég blæs á allar upphrópanir um að aðgerðir lögreglu hafi verið of harkalegar. Þegar búið er að reyna að tjónka við fólki í fjórar vikur og vara fólk við því að þetta yrði ekki liðið, er ekki annað hægt en að grípa í taumana þannig að eftir er tekið.
Ég geri ekki ráð fyrir öðru en að næstu daga muni bílstjórarnir grípa til harðari og umsvifameiri aðgerða en áður. Ég á þó von á því að vettlingatökum lögreglunnar sé hér með lokið og að tekið verði á lögbrotum sem stefna lífi og almannaheill í hættu, af fullri hörku.
Mbk, Auður
»
25.01.2008 23:42:54 / audur
Elsku yndið mitt hún Eva María varð 5 ára í dag. Hún átti góðan dag í faðmi fjölskyldunnar og naut þess svo sannarlega að vera stjarna dagsins. Henni fannst hún hafa stækkað töluvert frá því í gær, þegar hún var aðeins 4 ára. Reyndar það mikið að hún lagði til að við myndum fara að versla ný föt þar sem það gæti hreinlega ekki verið að hún passaði enn í þau föt sem hún notaði þegar hún var bara 4 ára. Mbk, Auður
»
22.01.2008 11:49:24 / audur
Nú verðum við öll að leggja hönd á plóginn. Klikkið á linkinn hér fyrir neðan og hjálpið okkur hinum að lýsa andúð á þessum óforsvaranlegu vinnubrögðum sem við urðum vitni að í gær. http://www.petitiononline.com/nogbodid/petition.html Mbk, Auður
»
Síður: 1 2 3 ... 17
|
|